Gluggadagatal Grundarfjarðar
Á hverjum degi frá 1. til 24. desember opnast einn jólagluggi, sem fyrirtæki, stofnun eða íbúi í Grundarfirði hefur skreytt og býður vegfarendum að kíkja á gluggann. Á hverjum degi til jóla birtum við mynd af aðventuglugganum snemma morguns á vef og Facebook-síðu Grundarfjarðarbæjar, þar sem fólki gefst tækifæri til að reyna að giska á hvar hann er í bænum. Það er líka tilvalin hreyfistund með fjölskyldunni á aðventunni, að fara saman út að skoða jólagluggana í bænum.