Skip to content
Jólahald og umhverfið
- Tökum fjölnota pokann með okkur í öll innkaup og sleppum óþarfa umbúðum.
- Gefum upplifanir og gjafir úr heimabyggð.
- Skipuleggjum innkaupin og drögum úr sóun.
- Veljum umhverfismerkt hreinsiefni eða jafnvel umhverfisvæn, t.d. edik og sítrónusafa. Leiðbeiningar!
- Verum raunsæ við eldamennsku og bakstur, nýtum afganga og sóum ekki ljúffengum mat.
- Jólagjafir er hægt að gefa í fallegum taupokum, í skreyttum kössum sem hægt er að nota aftur eða jafnvel dagblöðum sem falla til á heimilinu.
- Flokkum allt rusl og komum því í réttan farveg
- Allur jólagjafapappír fer í endurvinnslutunnuna en gjafaborðar og límbönd ekki.
- Hreyfum okkur og njótum náttúrunnar
- Sýnum þakklæti og verum góð við hvert annað.
Anna Anok2021-12-10T10:02:05+00:00
Page load link