Það eru áskoranir að halda uppi viðburðum á tímum sem þessum, enn og aftur. En þetta kunnum við mæta vel og heilmargt sem hægt er að gera þrátt fyrir takmarkanir.
- Það er hægt að klæða sig vel og fara út í veðrið með kakó á brúsa
- Það er hægt að skella sér í lognið á skógræktarsvæðum Snæfellsness
- Vasaljósaganga í myrkrinu
- Veður fyrir skauta! Hvernig væri að rifja upp skautakunnáttuna á vötnum Snæfellsness?
- Sjósund? Grundarfjörður – Stykkishólmur: Fylgist með sjósundshópunum og tímasetningum og sláist í hressan hóp!
- Ratleikir: Leitum að rauðum jólakúlum í Grensás við Stykkishólm – Svo er lítið mál að búa til sinn eigin ratleik! T.d. hér: https://en.actionbound.com/
- Frisbígolf eða bara Golf?
- Taka upp podcast? Hvernig væri það? Ókeypis hugbúnaður á https://anchor.fm/ hægt að nota farsímann og dreifa svo á Spotify! Af hverju ekki?
- Hagyrðingahorn: Semja vísur og deila og jafnvel skora á ættingja og vini?
- Netskrafl! https://netskrafl.is/greet
- Leikir á netinu: snilld.is
- Afþreyning tengd jólum hér: https://www.whychristmas.com/fun/
- Íslenskur orðaleikur á netinu! https://orda.is/
- Karókí!! Hvernig væri það? Hér eru 75 lög sem koma þér í gott skap!! https://parade.com/946264/parade/happy-songs/
- Hefurðu gaman af fikti? Þá er sniðugt að skoða hér.. https://borgarbokasafn.is/um-verkstaedi/fiktvarpid
- Svo má teikna, lita, mála, baka, sauma, prjóna, smíða, þrífa :/ –